
Hús íslenskunnar stendur við Arngrímsgötu á Melunum í Reykjavík og mun m.a. hýsa fjölbreytta starfsemi stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Húsið er sporöskjulaga og tæknilega flókin bygging sem meðal annars mun hýsa sérhannaða handritageymslu í kjallara. Árnastofnun deilir byggingunni með Háskóla Íslands og þegar hún verður tilbúin flytjast kennsla og rannsóknir í íslenskum fræðum þangað. Byggingin er um 6.500 fermetrar auk um 2.200 fermetra opinnar bílageymslu. Verklok vor 2023.
Undirritun samnings um byggingu Húss íslenskunnar.