
Verkið fólst í byggingu nýs alhliða íþróttahúss við Egilshöll í Grafarvogi. Byggingin er um 2.750 fermetrar að stærð með búnings- og geymsluaðstöðu. Íþróttahúsið rúmar tvo handbolta- og körfuboltavelli og fá körfuknattleiks- og handboltadeildir íþróttafélagsins Fjölnis æfinga- og keppnisaðstöðu þar inni. Enn fremur fær Borgarholtsskóli þar aðstöðu fyrir afreksíþróttabraut ásamt öðru íþróttastarfi. Kostnaðaráætlun byggingarinnar nan um 780 milljónum króna. Reginn lét byggja íþróttahúsið og sér um rekstur þess. Arkitekt hússins voru Alark arkitektar og verkfræðihönnun og verkefnisstjórn annaðist Verkís hf.