Ístak sá um byggingu Ráðhúss Reykjavíkur. Ráðhúsið er áberandi bygging við Tjörnina í miðborg Reykjavíkur en útlit þess er í módernískum stíl, ólíkt öllum þeim byggingum sem fyrir voru í miðbænum fyrir byggingu þess. Borgarstjórn Reykjavíkur fundar í ráðhúsinu en það hýsir einnig skrifstofu borgarstjóra Reykjavíkur auk annarra æðstu embættismenn sveitarfélagsins. Húsið var hannað af Margréti Harðardóttur og Steve Christer hjá Stúdíó Granda. Framkvæmdir hófust árið 1988 en það var fullbyggt árið 1992 og tekið í notkun árið 1994.
Ráðhús Reykjavíkur.