
Verkefnið var alverk og var Ístak alverktaki fyrir Félagsstofnun stúdenta. Verkið fólst í að hanna, byggja og fullbúa 244 íbúðaeiningar. Þar af voru 93 einstaklingsíbúðir og 33 paraíbúðir ásamt 118 einstaklingsherbergjum. Húsið allt skiptist í bílakjallara og stúdentagarða á 1. – 5. hæð á samtals um 14.000 m2. Nýtt íbúðaform var tekið notkun á görðunum með tilkomu byggingarinnar. Þar eru átta til níu herbergja kjarnar skipulagðir eftir hugmyndafræði deilihúsnæðis þar sem svefnherbergi er með sérbaðherbergi en hver kjarni deilir forstofu, eldhúsi, setustofu og alrými.
Á vinnusvæðinu 2019