Fjármálasvið



Fjármálasvið
Fjármálasvið ber ábyrgð á heildarstjórnun fjármála félagsins og tryggir gæði fjárhagslegar upplýsinga, að þær séu tímanlegar og nýtist til upplýstrar ákvarðanatöku. Sviðið sinnir m.a. bókhaldi, fjárstýringu, uppgjöri og áætlanagerð, auk þess að veita stjórnendum greiningar og yfirsýn yfir rekstur.
Fjármálasvið er lykileining í rekstri félagsins sem sameinar fjármálastjórnun, rekstrarstuðning og sérfræðiráðgjöf. Með samvinnu ólíkra deilda tryggir sviðið skilvirkni, gagnsæi og traustan grunn fyrir ákvarðanatöku og áframhaldandi þróun fyrirtækisins.
Innan sviðsins starfa sérhæfðar deildir sem sinna lykilhlutverkum á borð við reikningshald, kostnaðareftirlit, lögfræði, upplýsingatækni ásamt markaðs- og viðburðamálum. Saman styðja þessar einingar við kjarnastarfsemi félagsins og daglegan rekstur.
Hlutverk og einingar
Reikningshald
Sér um bókhald félagsins, fjárhagslegar færslur, uppgjör og innri og ytri skýrslugerð.
Fjárstýring
Annast innheimtu útistandandi krafna og greiðslu reikninga, auk umsýslu tengdri fjárstýringu.
Kostnaðareftirlit
Veitir stjórnendum verka stuðning við gerð og eftirlit með fjárhagsáætlunum. Fylgist með kostnaði verkefna og tryggir að rekstur sé í samræmi við áætlanir og markmið.
Samningastjórar
Veita stjórnendum og verkefnum félagsins lögfræðilegan og samningatengdan stuðning, bæði gagnvart verkkaupum, undirverktökum og birgjum.
Skrifstofustjórnun
Styður við innra og ytra markaðsstarf félagsins, annast kynningarmál og sjá um miðlun upplýsinga í gegnum vef, samfélagsmiðla og annað efni ásamt almennri skrifstofustjórnun.
Upplýsingatækni
Sér um rekstur, stýringu og öryggismál upplýsingatæknikerfa félagsins.
Tengiliður



