Innri þjónusta

Innri þjónusta
Hlutverk Innri þjónustu er að samræma og styðja við verkefni Ístaks frá upphafi til enda, með því að færa þjónustuna nær framkvæmdunum og tryggja heildstæðan faglegan stuðning.
Undir sviðið heyra fjórar kjarnadeildir: Gæða- og öryggisdeild, BIM og tækniþróun, Áætlanadeild og Innkaupadeild. Sviðið vinnur þvert á öll verkefni og er stjórnendum og tæknimönnum innan handar við áætlanagerð, tilboðsvinnu, samræmingu vinnubragða og innleiðingu á öryggis- og gæðakröfum.
Markmiðið er að nýta sérhæfða þekkingu innan fyrirtækisins sem best, bæta upplýsingaflæði og hámarka nýtingu á tækni til að tryggja framúrskarandi árangur í öllum verkefnum Ístaks.

Kjarnadeildir
Undir sviðið heyra fjórar kjarnadeildir: Gæða- og öryggisdeild, BIM og tækniþróun, Áætlanadeild og Innkaupadeild. Sviðið vinnur þvert á öll verkefni og er stjórnendum og tæknimönnum innan handar við áætlanagerð, tilboðsvinnu, samræmingu vinnubragða og innleiðingu á öryggis- og gæðakröfum.
Innkaupadeild
Innkaupadeild hefur yfirumsjón með innkaupum og birgðahaldi í samræmi við innkaupa- og umhverfisstefnu fyrirtækisins. Deildin starfar náið með stjórnendum og aðstoðar við gerð innkaupaáætlana við upphaf nýrra verka, samningagerð, flutninga og almenna útvegun á efni og tækjum. Þá vinnur deildin markvisst að sjálfbærni í innkaupum, meðal annars með því að velja vistvæna kosti og tryggja að afgangsefni frá vinnustöðum komist aftur í nýtingu.
Áætlunardeild
Áætlunardeild styður við vandaða áætlanagerð innan fyrirtækisins til að lágmarka áhættu og tryggja að verkefnum sé skilað á réttum tíma. Sérfræðingar deildarinnar aðstoða stjórnendur við gerð og uppfærslu verkáætlana, allt frá tilboðsgerð til verkloka. Með miðlægum stuðningi, villuprófunum og reglulegu framvindumati er tryggt að allar áætlanir uppfylli ströngustu gæðakröfur. Jafnframt heldur deildin utan um heildaryfirsýn verkefna, sem auðveldar samnýtingu auðlinda, tímanlegan undirbúning innkaupa og skýra greiningu á mögulegum töfum.
Gæðadeild
Gæðadeild leiðir og samræmir allt gæða- og umhverfisstarf í takt við stefnur og vottað stjórnunarkerfi Ístaks. Deildin vinnur náið með öllum verkefnateymum og veitir faglegan stuðning við gerð gæða- og umhverfisskipulags, framkvæmd innri úttekta, skráningu frávika og innleiðingu þessara krafna á verkstöðum. Með ríka áherslu á stöðugar umbætur í verkferlum tryggir deildin fagleg vinnubrögð, lágmörkun umhverfisáhrifa, aukin gæði í framkvæmdum og að væntingum viðskiptavina sé ávallt mætt.
Öryggisdeild
Öryggisdeild ber ábyrgð á að efla og viðhalda öflugu vinnuverndarstarfi í samræmi við öryggis- og vinnuverndarstefnu fyrirtækisins. Deildin er starfsfólki og stjórnendum til halds og trausts við skipulag öryggismála, atvikarannsóknir og fræðslu innan fyrirtækisins. Lögð er mikil áhersla á öflugar forvarnir, umbótastarf og að fylgjast grannt með nýjungum í vinnuvernd og öryggisbúnaði til að tryggja öruggt vinnuumhverfi allra.
BIM og tækniþróun (VDC)
BIM (upplýsingalíkön) og stafræn tækniþróun gegna lykilhlutverki í að nútímavæða mannvirkjagerð innan Ístaks. Í BIM ferlinu er framkvæmdin byggð stafrænt áður en farið er á verkstað, sem eykur gæði, áreiðanleika og aðgengi gagna til muna. Með því að styðjast við þrívíddarlíkön og önnur stafræn verkfæri aðstoðar deildin verkefnateymi við að hagræða og betrumbæta ýmsa verkferla. Helsti ávinningurinn er meðal annars:
- Auðveldari og nákvæmari magntaka.
- Aukin rýni á hönnunargögnum með árekstrargreiningum.
- Einfaldari samræming á milli hönnunar og framleiðslu sem minnkar áhættu.
- Hagræðing í framleiðslu járnbendingar með stafrænni stýringu á tækjabúnaði.
- Aukið aðgengi að verkgögnum í gegnum skýjalausnir og verkefnavefi, sem tryggir skilvirk samskipti á verkstað.
Tengiliður



