Umhverfisstefna


Við fylgjum lögum og samningum
Að fylgja gildandi lögum, reglugerðum og gagnkvæmum samningum er grundvallarforsenda í starfsemi okkar og viðhorfi okkar til umhverfismála.
Við erum meðvituð um þau áhrif sem starfsemi okkar hefur á umhverfið og vinnum markvisst að því að vernda það og koma í veg fyrir mengun.
Við berum öll ábyrgð á umhverfinu
Við gerum ráð fyrir að allir starfsmenn séu meðvitaðir um umhverfismál og hafi það að leiðarljósi að vernda umhverfið, bæði til skemmri og lengri tíma.
Með fræðslu og þátttöku tryggjum við að allir taki virkan þátt í að stuðla að jákvæðum umhverfisárangri í daglegu starfi.
Við sýnum umhverfislega ábyrgð
Það er stefna okkar að lágmarka umhverfisáhrif og sýna ábyrgð í öllum þáttum starfseminnar. Við gerum það meðal annars með því að:
- Skipuleggja, hanna og velja aðferðir sem taka mið af umhverfisáhrifum og að sjálfbærni sé höfð að leiðarljósi.
- Stýra og vakta mikilvæga umhverfisþætti og miðla upplýsingum um þær umbætur sem eru í gangi.
- Huga að umhverfisáhrifum og eldsneytisnýtni við kaup, rekstur og viðhald véla og búnaðar.
- Leita leiða til að draga úr úrgangi og lágmarka efnanotkun.
- Leggja áherslu á rétta meðhöndlun úrgangs og nýta möguleika á endurvinnslu og endurnýtingu.
- Stuðla að stöðugum umbótum á umhverfisstjórnunarkerfi fyrirtækisins og bæta árangur í umhverfismálum með reglulegri eftirfylgni og úrbótum.


