Öryggisstefna


Tryggjum öryggi starfsmanna
Við viljum vera fremst á okkar sviði, líka þegar kemur að vinnuvernd. Markmið okkar er að vera með slysalausan vinnustað, því við eigum öll að geta unnið í öruggu vinnuumhverfi og notið þess að þróa hæfileika okkar hjá Ístaki.
Við ráðum til okkar hæft starfsfólk og stjórnendur sem leiða með góðu fordæmi. Stjórnendur bera ábyrgð á að því að vinnustaðir Ístaks séu skipulagðir með öryggi og vinnuvernd að leiðarljósi, þar sem öll áhætta er undir stjórn og farið er eftir gildandi lögum og reglum um vinnuvernd sem og öðrum kröfum.
Stjórnendur bera einnig ábyrgð á því að gott aðgengi sé að búnaði, fræðslu og öðru sem þarf til að hægt sé að lágmarka áhættu og auka starfsánægju.
Við skuldbindum okkur til stöðugra umbóta á vinnuverndarstarfinu með því að setja okkur mælanleg markmið og fylgja þeim eftir. Lögð er áhersla á að skapa jákvætt vinnuumhverfi sem hvetur til samráðs og þátttöku starfsfólks í umbótastarfinu.
Við gætum hvers annars
Að gæta hvers annars þýðir að við berum ábyrgð á eigin öryggi ásamt öryggi og starfsánægju samstarfsfólksins, hvort sem við erum stjórnendur, starfsfólk eða aðrir sem starfa á vinnusvæðum Ístaks.
Við gætum hvers annars þegar við gefum okkur tíma til að skipuleggja vinnuna vandlega. Við förum eftir gildandi lögum og reglum um vinnuvernd. Við metum alla áhættu, fjarlægjum hættu og veitum leiðbeiningar áður en verk hefst. Heilbrigt og öruggt vinnuumhverfi hefur forgang fram yfir fjármál og önnur sjónarmið.
Við gætum hvers annars þegar við sýnum virðingu, spyrjum spurninga, erum forvitin og veitum samstarfsfólki okkar athygli.
Við gætum hvers annars þegar við segjum nei, stoppum og grípum inn í ef við tökum eftir því að verk eru ekki unnin á öruggan hátt, eða ef við sjáum að samstarfsfélaga líður illa.
Við gætum hvers annars þegar við vinnum markvisst að því að virkja starfsfólk og vinnuverndarskipulagið með það að markmiði að vera stöðugt að bæta vinnuumhverfið. Við deilum þekkingu og vinnum saman þvert á fyrirtækið og lærum þannig af eigin reynslu og annarra. Þetta gerir okkur kleift að leggja jafn ríka áherslu á vinnuumhverfi þvert á fyrirtækið.
Við gætum hvers annars þegar við leitumst við að þróa nýjar lausnir, ný verkfæri og nýja starfshætti sem bæta vinnuumhverfið á verkstað, í framleiðslu eða á skrifstofunni. Þannig getum við fyrirbyggt slys, ofálag og streitu, til hagsbóta fyrir allt starfsfólk, Ístak og samfélagið.
Við gætum hvers annars fyrir okkur sjálf, samstarfsfólkið og fjölskyldur okkar.


