Sjálfbærnisskýrsla


Sjálfbærnisskýrsla


Sjálfbærnisskýrsla Ístaks

 

Sjálfbærniskýrslu félagsins er ætlað að veita heildstæða mynd af því hvernig það vinnur að sjálfbærni í rekstri sínum og virðiskeðju út frá umhverfisþáttum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum.


Skýrslan veitir einnig breiða sýn á almenna starfsemi félagsins enda hefur félagið markvisst unnið að verkefnum undanfarin ár sem með beinum og óbeinum hætti má tengja við markmið um sjálfbærni.

Skýrslan er unnin í samræmi við valfrjálsan staðal um sjálfbærnireikningsskil (e. Voluntary Sustainability Reporting Standard for non-listed SMEs – VSME) sem stuðlar að gagnsæi við upplýsingagjöf og tryggir samræmda aðferðarfræði við framsetningu.


Félagið leggur áherslu á að efni skýrslunnar byggi á áreiðanlegum gögnum og sé skýr í framsetningu og nýtist því til markmiðasetningar til aukinnar sjálfbærni í rekstri.