Vinna hjá Ístak

Vilt þú vinna hjá Ístak?

Hjá Ístaki starfa hátt á fjórða hundrað manns við spennandi og fjölbreytt verkefni. Við kappkostum að vera eftirsóknarverður vinnustaður í byggingageiranum þar sem hver starfsmaður er metinn að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu án tillits til kyns, aldurs eða þjóðernis.

Jón Jónsson
Verkefnastjóri
Sigríður Sigurðardóttir
Byggingarverkfræðingur

Störf í boði


Við leggjum mikið upp úr góðu og sveigjanlegu starfsumhverfi fyrir starfsfólkið okkar og styðjum vel við öflugt starfsmannafélag.



Kynntu þér störf í boði eða leggðu inn almenna umsókn.

  • Sumarstörf 2026 - Háskólanemar

    Ístak ræður árlega til sín sumarstarfsfólk í störf tækninema. Við leitum að lærdómsfúsum einstaklingum sem hafa áhuga á að kynnast störfum tengdum þeirra námi í mannvirkjagerð. Kynjahlutfall nema sem fá störf eru alltaf jöfn og tökum við á móti umsóknum frá öllum sem hafið hafa nám í byggingatækni- og verkfræði.

    Sjá nánar
  • Spennandi starf í mannauðsdeild Ístaks

    Við hjá Ístaki leitum að jákvæðri og drífandi manneskju til að ganga til liðs við mannauðsdeildina okkar í tímabundið starf til 18 mánaða, vegna fæðingarorlofs. Möguleiki er á að staðan verði breytt í framtíðarstarf að tímabili loknu.

    Sjá nánar
  • Almenn umsókn - smiðir

    Ertu smiður í leit að spennandi verkefnum? Ístak er stöðugt að leita að öflugum smiðum til starfa á fjölbreyttum framkvæmdasvæðum.

    Sækja um
  • Almenn umsókn - Verk- og tæknifræðingar

    Brennur þú fyrir bygginga- og mannvirkjagerð og hefur áhuga á að vinna með öflugu teymi? Þó Ístak sé ekki með auglýst stöðugildi að svo stöddu, tökum við á móti almennum umsóknum frá verk- og tæknifræðingum.

    Sækja um starf
Vinna hjá Ístak

Vilt þú vinna hjá Ístak?

Hjá Ístaki starfa hátt á fjórða hundrað manns við spennandi og fjölbreytt verkefni. Við kappkostum að vera eftirsóknarverður vinnustaður í byggingageiranum þar sem hver starfsmaður er metinn að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu án tillits til kyns, aldurs eða þjóðernis.