Ístak semur við First Water
8. september 2026

Ístak semur við First Water um framkvæmdir við lok uppbyggingar á fyrsta áfanga landeldisstöðvar í Þorlákshöfn
Ístak hefur undirritað samning við First Water um umfangsmiklar framkvæmdir á athafnasvæði fyrirtækisins í Þorlákshöfn. Verkefnið er liður í því að ljúka fyrsta áfanga landeldisverkefnis First Water, en með framkvæmdunum tvöfaldast árleg framleiðslugeta stöðvarinnar, úr 5.000 í 10.000 tonn.
Verkefnið sem Ístak tekur að sér felur í sér uppbyggingu kerja- og stjórnbyggingar sem mun hýsa átta eldisker, hvert um 5.500 rúmmetra að stærð, ásamt tilheyrandi tæknibúnaði.
Umfang verksins
Samningurinn nær yfir jarðvinnu, lagnir, uppsteypu, stálvirki og utanhúsfrágang.
Framkvæmdir hefjast á næstunni og er gert ráð fyrir að þær taki 16–18 mánuði, með áætluðum verklokum á fyrsta ársfjórðungi 2028.
„Uppbygging First Water er metnaðarfullt og tæknilega krefjandi verkefni sem fellur vel að reynslu og þekkingu Ístaks. Við erum stolt af því að taka þátt í þessum mikilvæga áfanga og hlökkum til góðs samstarfs við First Water við framkvæmdina,“ segir Karl Andreassen, forstjóri Ístak.
„Samningurinn við Ístak er stór og mikilvægur áfangi í uppbyggingu First Water. Með framkvæmdunum ljúkum við fyrsta áfanga verkefnisins og tvöföldum núverandi framleiðslugetu. Það er ánægjulegt að fá öflugt íslenskt verktakafyrirtæki með mikla reynslu af flóknum framkvæmdum til samstarfs við okkur,“ segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri First Water.
Um er að ræða fyrsta áfanga af sex í landeldisstöð First Water í Þorlákshöfn.
Fréttir











