Saga hlýtur Grænu skófluna 2026
19. október 2026

Við hjá Ístaki erum stolt af því að hljóta Grænu skófluna, viðurkenningu Grænni byggðar, fyrir endurbætur á Sögu. Viðurkenninguna hljótum við í samstarfi við Fasteignir Háskóla Íslands og Andrúm arkitekta fyrir að hafa tekið eina þekktustu byggingu Reykjavíkur í gegn og gefið henni nýtt hlutverk á vistvænan og sjálfbæran hátt. Verðlaunin voru afhent á Degi Grænni byggðar í byrjun október, en þetta er í annað sinn sem sérstök viðurkenning er veitt fyrir endurnýjun mannvirkja.
Þegar verkið hófst snemma árs 2022 var Saga hótel, en nú hýsir byggingin starfsemi Háskóla Íslands og 111 stúdentaíbúðir. Í stað þess að rífa og byggja nýtt var ákveðið að nýta það sem fyrir var. Með því sparaðist bæði efni og orka, og minna af úrgangi fór til förgunar. Alls voru um 14.000 fermetrar teknir í gegn og stóðu framkvæmdir fram á þetta ár.
Í verkinu voru um 4.300 tonn af efni fjarlægð úr húsinu. Starfsfólk okkar á verkstað flokkaði efnið jafnóðum og skilaði sú vinna því að um 68% fór í endurvinnslu og 24% í orkunýtingu, þannig að aðeins lítið brot endaði í förgun.
Í umsögn dómnefndar segir að verkefnið sýni með skýrum hætti hvernig hægt sé að lengja líftíma stórra mannvirkja, nýta fyrirliggjandi byggingarauðlindir og skapa nýtt gildi án þess að byrja frá grunni. Saga sé sterkt fordæmi fyrir endurnýtingu og aðlögunarhæfni núverandi byggðar. Grænni byggð eru félagasamtök sem hafa í rúmlega 15 ár unnið að því að efla umhverfisvitund og grænar lausnir í byggingariðnaði, og því er viðurkenningin okkur sérstaklega kær.
Árangurinn byggir á góðu samstarfi við Fasteignir Háskóla Íslands og Andrúm arkitekta frá fyrstu stigum verksins. Við þökkum þeim og öllu því starfsfólki sem kom að verkinu fyrir vel unnin störf.




Fréttir












