Umfangsmiklar framkvæmdir fyrir Borealis Data Center á Blönduósi
10. nóvember 2026

Á Blönduósi er í mörg horn að líta þessa dagana. Ístak vinnur þar að umfangsmiklum uppbyggingarverkefnum fyrir Borealis Data Center og gegnir hlutverki stýriverktaka á svæðinu. Í því felst að halda utan um fjölmarga verktaka og faggreinar og tryggja góða samhæfingu allra sem að framkvæmdunum koma.
Stærsta verkefnið er bygging nýs 7.600 m² gagnavers. Jarðvinna hófst í maí 2026 og eru framkvæmdir nú komnar á það stig að vinna við lagna- og rafkerfi er hafin innanhúss.
Samhliða byggingu nýja gagnaversins lauk Ístak umbreytingu eldri bygginga sem teknar voru í rekstur á haustmánuðum. Þá standa einnig yfir framkvæmdir við tæplega 400 m² rofahús og varaaflsgarð fyrir gagnaverin.
En verkefnin eru ekki þar með upptalin. Í byrjun desember er áætlað að hefja byggingu 950 m² viðbyggingar við skrifstofu- og þjónustubyggingu Borealis Data Center. Viðbyggingin verður reist úr Svansvottuðum CLT-timbureiningum.
Þegar framkvæmdir standa sem hæst er gert ráð fyrir að um 200 manns starfi á framkvæmdasvæðinu. Umfang verkefnanna er því mikið og kallar á náið samstarf, öfluga verkefnastýringu og góða samhæfingu allra þeirra sem að uppbyggingunni koma.



Fréttir












