Síðasta vindmyllu uppistaðan steypt
8. október 2026

Föstudaginn 2. október náðist stór áfangi hjá Ístaki í Vaðölduveri, vindorkuveri Landsvirkjunar, þegar 28. og jafnframt síðasta vindmylluundirstaðan var steypt. Fyrsta undirstaðan var steypt 15. september 2025 og hefur því tekið rétt rúmt ár að steypa þær allar. Það er frábær árangur, ekki síst þegar litið er til krefjandi aðstæðna á hálendinu.
Gerð hverrar undirstöðu er mikið nákvæmnisverk. Í hverri þeirra eru 80–90 tonn af bendistáli og um 450 rúmmetrar af steypu, sem samsvarar 50-60 steypubílsförmum sem dælt er í mótin í einni samfelldri lotu. Á þessu rúma ári hafa alls verið notaðir um 13.000 rúmmetrar af steypu og 2.300 tonn af bendistáli í verkinu. Til að setja það í samhengi samsvarar steypumagnið um 1.600 steypubílsförmum og nægir til að steypa um 100 einbýlishús.
Nú er kapp lagt á að ljúka frágangi jarðvinnu áður en veturinn skellur á. Verkið er vel á undan áætlun, en áætlaður verktími er til september 2027.
Í tilefni áfangans var slegið upp veislu í mötuneytinu í Vaðölduveri þar sem boðið var upp á glæsilega köku frá Almari bakara í Hveragerði. Kakan var nokkuð nákvæm eftirlíking af undirstöðu í mælikvarðanum 1:20.
Þetta verkefni er frábær viðbót við langa og farsæla sögu Ístaks í uppbyggingu orkumannvirkja á Íslandi




Fréttir












