Fyrsti skóladagurinn í Nuuk
27. ágúst 2026

Fyrsti skóladagurinn er alltaf sérstakur en í Nuuk, Grænlandi var góð ástæða til að fagna þetta árið. Skólabörnin I Nuuk gátu loks stigið inn í glænýjan og langþráðan skóla sinn – Atuarfik Inussuk.
Ístak hefur verið alverktaki við byggingu skólans, en um er að ræða risavaxið samfélagsverkefni í miðbæ Nuuk. Skólinn mun þjóna um 1.200 börnum auk þess er sérbygging fyrir leikskóla fyrir 120 börn. Heildarstærð byggingarinnar er um 18.000 fermetrar en Ístak sá einnig um frágang á allri skólalóð og bílastæðum.
Framkvæmdin var gríðarlega efnismikil og fóru til dæmis rúmlega 5.700 rúmmetrar af steypu, 24.000 fermetrar af mótum og 518 tonn af járnbendingu í verkið.
Kennileiti í landslaginu Nafnið Inussuk þýðir „varða“ á grænlensku – manngerðu grjóthrúgurnar sem í gegnum kynslóðir hafa þjónað sem kennileiti í landslaginu. Nafnið var valið af íbúum Nuuk og passar á margan hátt fallega við metnað nýja skólans: Að verða áfangi fyrir Nuuk og leiðarljós fyrir nemendurna á þeirra menntabraut.
Við hjá Ístaki óskum Nuuk og öllum nemendum skólans innilega til hamingju með þessa glæsilegu nýju byggingu.




Fréttir











