Formleg opnun nýrrar tvíbreiðrar brúar yfir Stóru-Laxá

14. júlí 2023

Ný tvíbreið brú yfir Stóru-Laxá í Hreppum var formlega opnuð í gær, fimmtudaginn 13. júlí 2023. Þó hafði áður verið opnað fyrir umferð þann 25. júní 2023. Nýja tvíbreiða brúin kemur í stað einbreiðrar 120 m langrar brúar frá árinu 1985. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar héldu stuttar ræður á brúnni áður en þau klipptu á borða til að marka hina formlegu opnun. Með þeim í því verkefni voru þeir Haraldur Þór Jónsson oddviti og sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Jón Bjarnason oddviti Hrunamannahrepps. Stóra-Laxá liggur enda á mörkum sveitarfélaganna tveggja. 

Hefð hefur verið fyrir því að ráðherra fari fyrstur yfir brýr eftir formlega opnun en í þetta sinn voru það börn af svæðinu sem fengu þann heiður en fararskjótarnir voru forlátir kassabílar sem þeir Haraldur og Jón ýttu yfir brúna. 

Skeiða- og Hrunamannavegur (30) um Stóru-Laxá 

Verkið sem Vegagerðin bauð út bar heitið; Skeiða- og Hrunamannavegur (30) um Stóru-Laxá. Í því fólst bygging brúar yfir Stóru-Laxá, gerð nýs vegkafla Skeiða- og Hrunamannavegar (30) beggja vegna, breikkun vegamóta við Skarðsveg og við Auðsholtsveg og gerð reiðstígs. Nýja brúin er til hliðar við gömlu brúna, tvíbreið, staðsteypt, eftirspennt bitabrú, 145 m löng í fjórum höfum. Lengd vegkafla er rúmlega 1000 m og lengd reiðstígs rúmir 300 m. 

Tilboð í verkið voru opnuð 24. ágúst 2021. Ístak bauð rúma 791 m.kr. í verkið sem var tæplega 82 prósent af áætluðum verktakakostnaði. Skrifað var undir verksamning Vegagerðarinnar og Ístaks 23. september 2021. Framkvæmdir hófust í október það ár. 

Með Ístak sem aðalverktaka störfuðu margir undirverktakar við útboðsverkið: Steypustöðin sá um steypuframleiðslu, Nesey annaðist jarðvinnu og vegagerð, VA-verktakar unnu við niðurlögn steypu í brúardekk, CCL sá um uppspennu, Bikun sá um klæðningar á vegum og Rekverk settu upp vegrið.  

Tafir vegna kuldatíðar og afhendingu búnaðar 

Verklok voru áætluð í lok september 2022 en brúin var opnuð fyrir umferð í júní 2023. 

Vegna ytri aðstæðna urðu tafir á afhendingu búnaðar sem þurfti til brúargerðarinnar. Það varð þess valdandi að framkvæmdum seinkaði fram á vetur. Veturinn 2022-2023 reyndist afar kaldur með langvarandi frostatíð sem gerði erfitt um vik að steypa brúargólfið. Því var brugðið á það ráð að byggja yfir brúna og tjalda yfir og niður með hliðum að jörð. Kynt var bæði undir brúargólfið og einnig í tjaldinu yfir brúargólfinu áður en steypt var. Þar inni var orðinn um 10° c hiti þegar steypuvinna hófst. Steypuvinna við brúargólfið hófst að morgni þriðjudagsins 24. janúar og lauk seinnipart miðvikudagsins 25.janúar og hafði vinnan þá staðið yfir samfellt í 30 klukkustundir. 

Brúnni forðað frá stórtjóni 

Kuldatíðin hafði fleiri áhrif á framkvæmdina. Í janúar 2023 höfðu myndast klakastíflur í árfarveginum sem voru í þann veginn í bresta. Stefndi þá í stórtjón á brúnni sem var á viðkvæmu byggingarstigi. Við byggingu brúarinnar hafði árfarvegurinn verið þrengdur og verkpallar reistir yfir hann. Fyrirséð var að vatnsopið bæri ekki stóraukið vatnsrennsli með jakaburði. Til að bjarga málum var vegurinn að gömlu brúnni rofinn 19. janúar til að opna nýjan farveg fyrir ána og skapa svigrúm fyrir aukið vatnsrennsli. Næsta dag, þann 20. janúar, gerði asahláku eftir um sex vikna samfelldan frostakafla. Mikill ís var kominn á ána og því viðbúið að áin ryddi sig með miklu vatnsflóði og jakaburði. Þann 21. janúar, tveimur dögum eftir að vegurinn var rofinn, ruddi áin sig fram með miklu flóði og streymdi að hluta um hinn nýja farveg. Með stórvirkum vinnuvélum tókst starfsmönnum Ístaks að bægja frá ísjökum og halda rennslinu greiðu á meðan vatnselgurinn var mestur og forða nýja mannvirkinu frá skemmdum. 

Helstu verkefnin okkar


Sjá laus störf

Fréttir

8. september 2026
Ístak semur við First Water um framkvæmdir við lok uppbyggingar á fyrsta áfanga landeldisstöðvar í Þorlákshöfn Ístak hefur undirritað samning við First Water um umfangsmiklar framkvæmdir á athafnasvæði fyrirtækisins í Þorlákshöfn. Verkefnið er liður í því að ljúka fyrsta áfanga landeldisverkefnis First Water, en með framkvæmdunum tvöfaldast árleg framleiðslugeta stöðvarinnar, úr 5.000 í 10.000 tonn. Verkefnið sem Ístak tekur að sér felur í sér uppbyggingu kerja- og stjórnbyggingar sem mun hýsa átta eldisker, hvert um 5.500 rúmmetra að stærð, ásamt tilheyrandi tæknibúnaði. Umfang verksins Samningurinn nær yfir jarðvinnu, lagnir, uppsteypu, stálvirki og utanhúsfrágang. Framkvæmdir hefjast á næstunni og er gert ráð fyrir að þær taki 16–18 mánuði, með áætluðum verklokum á fyrsta ársfjórðungi 2028. „ Uppbygging First Water er metnaðarfullt og tæknilega krefjandi verkefni sem fellur vel að reynslu og þekkingu Ístaks. Við erum stolt af því að taka þátt í þessum mikilvæga áfanga og hlökkum til góðs samstarfs við First Water við framkvæmdina, “ segir Karl Andreassen, forstjóri Ístak. „ Samningurinn við Ístak er stór og mikilvægur áfangi í uppbyggingu First Water. Með framkvæmdunum ljúkum við fyrsta áfanga verkefnisins og tvöföldum núverandi framleiðslugetu. Það er ánægjulegt að fá öflugt íslenskt verktakafyrirtæki með mikla reynslu af flóknum framkvæmdum til samstarfs við okkur, “ segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri First Water. Um er að ræða fyrsta áfanga af sex í landeldisstöð First Water í Þorlákshöfn.
27. ágúst 2026
Fyrsti skóladagurinn er alltaf sérstakur en í Nuuk, Grænlandi var góð ástæða til að fagna þetta árið. Skólabörnin I Nuuk gátu loks stigið inn í glænýjan og langþráðan skóla sinn – Atuarfik Inussuk. Ístak hefur verið alverktaki við byggingu skólans, en um er að ræða risavaxið samfélagsverkefni í miðbæ Nuuk. Skólinn mun þjóna um 1.200 börnum auk þess er sérbygging fyrir leikskóla fyrir 120 börn. Heildarstærð byggingarinnar er um 18.000 fermetrar en Ístak sá einnig um frágang á allri skólalóð og bílastæðum. Framkvæmdin var gríðarlega efnismikil og fóru til dæmis rúmlega 5.700 rúmmetrar af steypu, 24.000 fermetrar af mótum og 518 tonn af járnbendingu í verkið. Kennileiti í landslaginu Nafnið Inussuk þýðir „varða“ á grænlensku – manngerðu grjóthrúgurnar sem í gegnum kynslóðir hafa þjónað sem kennileiti í landslaginu. Nafnið var valið af íbúum Nuuk og passar á margan hátt fallega við metnað nýja skólans: Að verða áfangi fyrir Nuuk og leiðarljós fyrir nemendurna á þeirra menntabraut. Við hjá Ístaki óskum Nuuk og öllum nemendum skólans innilega til hamingju með þessa glæsilegu nýju byggingu.
20. ágúst 2026
Nýlega bættist rafdrifinn Mercedes-Benz eActros 600 við tækjaflota Ístaks. Um er að ræða þriggja öxla 6x2 dráttarbíl sem verður nýttur í fjölbreyttum verkefnum fyrirtækisins og markar mikilvægt skref í áframhaldandi orkuskiptum Ístaks. Með tilkomu bílsins getur Ístak fært rafvæðinguna inn á nýtt svið starfseminnar og dregið úr notkun jarðefnaeldsneytis í þungaflutningum. Ístak hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á að nýta innlenda, endurnýjanlega orku þar sem því verður við komið. Í Stapafellsnámu hefur stór hluti efnisvinnslunnar þegar verið rafvæddur, með tilheyrandi samdrætti í notkun jarðefnaeldsneytis. Nýi dráttarbíllinn er eðlilegt framhald þeirrar vegferðar og færir orkuskiptin úr staðbundinni efnisvinnslu yfir í flutninga. Ávinningurinn felst því ekki eingöngu í einum nýjum bíl í flotanum. Með fjárfestingunni byggir Ístak upp þekkingu og reynslu sem nýtist við frekari endurnýjun tækjaflotans, dregur úr losun í eigin starfsemi og eykur möguleika fyrirtækisins á að sinna verkefnum með hagkvæmari og umhverfisvænni hætti. eActros 600 er búinn 621 kWh LFP-rafhlöðum og er hannaður fyrir krefjandi þungaflutninga. Það verður því áhugavert að sjá hvernig bíllinn reynist í daglegum rekstri Ístaks og hvaða tækifæri reynslan af honum skapar fyrir næstu skref í orkuskiptum fyrirtækisins. Verkefnið er styrkt af Loftlags- og orkusjóði.
17. ágúst 2026
Nýtt hjúkrunarheimili var vígt við Skjólgarð á Höfn í Hornafirði föstudaginn 14. ágúst 2026. Nýbyggingin sem nú hefur verið tekin í notkun er fyrri áfangi verksins þar sem tekin hafa verið í notkun 20 sjúkrarými. Verkefnið fól í sér bæði viðbyggingu við Skjólgarð og umfangsmiklar endurbætur á eldra húsnæði heimilisins þar sem gert var ráð fyrir 10 sjúkrarýmum til viðbótar. Ístak kom að verkinu sem stýriverktaki í lok síðasta árs eftir að verkkaupi hafði rift verksamningi við þáverandi aðalverktaka.
11. ágúst 2026
Nýtt fjölnota íþróttahús í Borgarnesi hefur nú náð mikilvægum áfanga. Þann 10. ágúst fór fram öryggisúttekt á nýja húsinu sem gekk afar vel og voru engar athugasemdir skráðar. Virkilega ánægjulegt. Borgarbyggð hefur í kjölfarið tekið húsið formlega í notkun. Mannvirkið mun strax byrja að þjóna nærsamfélaginu, en um næstu helgi mun fara þar fram glæsilegt frjálsíþróttamót í húsinu. Við hjá Ístaki þökkum Borgarbyggð fyrir frábært samstarf og óskum íbúum til hamingju með nýja aðstöðu.
8. júní 2026
Öryggisdagur Ístaks var haldinn þann 29. maí sl. Markmið dagsins er að minna á mikilvægi skipulegs vinnuverndarstarfs með því að brjóta upp hefðbundna dagskrá og gera eitthvað eftirminnilegt saman, með öryggi og vinnuvernd í forgrunni. Í tilefni dagsins var boðið upp á fræðslu, samtöl og æfingar á vinnustöðum Ístaks vítt og breitt um landið sem og á Grænlandi. Þemað í ár var Viðbragðsgeta vegna óvæntra atburða, þar sem lögð var áhersla á að rýna viðbragðsáætlanir á hverjum stað ásamt því að æfa viðbragð við hinum ýmsu ógnum í umhverfinu. Í starfsemi Ístaks eru fjölmörg atriði sem þarf að huga að, til dæmis bruni í byggingum, bruni í vélum og tækjum, eldsumbrot og vatnsflóð svo eitthvað sé nefnt. Á mörgum stöðum var skipulögð fræðsla um eldvarnir og viðbrögð við bruna þar sem bæði starfsfólk Ístaks og undirverktaka okkar fengu að spreyta sig á notkun slökkvitækja og annars slökkvibúnaðar. Til að kanna viðbragðsgetu voru haldnar rýmingaræfingar þar sem skrifstofuhúsnæði, vinnubúðir og heilu vinnusvæðin voru rýmd. Þess ber að geta að sum vinnusvæðin okkar spanna tugi kílómetra en með góðu skipulagi og upplýsingaflæði tókst að rýma þau hratt og vel. Dagurinn heppnaðist vel og við höfum bætt við okkur bæði nýrri þekkingu og reynslu sem getir okkur enn betur í stakk búin til að takast á við óvænta atburði. Öryggisdagurinn bauð ekki síður upp á tækifæri til að rýna enn betur á hverjum stað og hvaða áskoranir eru fyrir hendi í vinnuumhverfinu og mikil umræða var um fyrri atvik og hvernig megi fyrirbyggja sambærileg atvik í framtíðinni. Við viljum þakka sérstaklega þeim sem komu að verkefninu með okkur, bæði leiðbeinendum og þeim slökkviliðum sem komu að fræðslunni og gerðu daginn enn eftirminnilegri.
20. maí 2026
Ístak hefur á undanförnum misserum lagt ríka áherslu á að draga úr umhverfisáhrifum starfsemi sinnar me ð markvissri rafvæðingu í starfsemi sinni, þ. á m. við efnisvinnslu í Stapafellsnámu. Í námunni er nú unnið með 100% hreinni íslenskri raforku, sem er stórt skref í átt að sjálfbærari rekstri félagsins. Umfangsmikil uppbygging hefur orðið á innviðum rafmagns á svæðinu og hefur m.a. verið tekin í notkun ný 1.250 Ampera heimtaug, settur hefur verið upp sérstakur heimtaugargámur fyrir hleðslustöð og dreifingu raforku innan svæðisins auk þess sem komið hefur verið fyrir 200 kW DC hraðhleðslustöð til hleðslu á vinnuvélum, svo sem hjólaskóflum og dráttarbílum. Mölun steinefna með rafmagni eingöngu hófst í maí 2026 í samstarfi við Skútaberg en kónbrjótsamstæðan á svæðinu er að fullu rafdrifin auk þess sem rafknúin LiuGong hjólaskófla annast efnisflutninga að og frá brjótum. Eftir því sem best er vitað er þetta í fyrsta sinn sem efnisvinnsla af þessu tagi er framkvæmd með þessum hætti hér á landi, þ.e. að fullu rafknúin. Með rafvæðingu efnisvinnslunnar er dregið umtalsvert úr umhverfisáhrifum af námvinnslu á svæðinu og má áætla að við vinnslu um 30.000 m³ af efni sparist um 75.000 lítrar af jarðefnaeldsneyti sem samsvari losun á um 201 tonni af CO2. Reynslan af rafdrifinni LiuGong 870 hjólaskóflu hefur reynst afar góð og hefur vélin staðið undir öllum væntingum í krefjandi aðstæðum við námuvinnsluna. Fram undan eru jafnframt frekari áfangar í rafvæðingu starfseminnar en um mitt ár 2026 tekur Ístak í notkun 100% rafdrifinn dráttarbíl með malarvagni. Með tilkomu hans verður unnt að flytja efni úr námunni með innlendri, endurnýjanlegri orku og verður efnisvinnsla í námunni þá að fullu rafknúin, þ.e. allt frá vinnslu til afhendingar. Verkefnið er styrkt af Loftlags- og orkusjóði.
vaðölduver
18. maí 2026
Miðvikudaginn 13. maí 2026 náðist stór áfangi í framkvæmdum Ístaks við Vaðölduver þegar holplötur sem mynda þak stærsta spennarýmis Safnstöðvarhússins voru hífðar á sinn stað. Með því er nú komið þak á allt húsið. Safnstöðvarhúsið gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu virkjunarinnar en þar verður meðal annars komið fyrir 200 tonna spennubreyti sem tekur við orku frá vindmyllunum og tengir hana áfram inn á háspennudreifikerfið. Undanfarnar vikur hefur verið mikill kraftur í framkvæmdunum og hafa starfsmenn Ístaks og undirverktakar unnið þétt saman að því að ná þessum mikilvæga áfanga.  Af því tilefni var haldin grillveisla fyrir allt starfsfólk á verkstað þar sem fagnað var góðum árangri í sól og blíðu — og meira að segja vindurinn í Vaðöldu tók sér stutta pásu þann daginn.
Greinar →