Fossvogsbrú

24. nóvember 2025

Við hjá Ístaki erum stolt af því að ganga til samninga við Betri Samgöngur, ásamt systurfélagi Ístaks Per Aarsleff A/S, um eitt af stærstu og glæsilegustu samgöngumannvirkjum næstu ára á Höfuðborgarsvæðinu, byggingu Fossvogsbrúar sem mun tengja Kópavog um Kársnes við Reykjavík Vestan Nauthólsvíkur. 

Þetta 270 metra langa brúarmannvirki verður mikilvægur liður í uppbyggingu Borgarlínu, þar sem markmiðið er að bæta samskipti milli hverfa, stytta ferðatíma og styrkja sjálfbærar samgöngur. Auk akreina fyrir Borgarlínu og forgangsumferðar, verður aðskilin hjólabraut og göngubraut á brúnni. 

Verkfræðileg heildarlausn – sameiginlegur styrkur Aarsleff og Ístaks

Til að tryggja nákvæmni og gæði verður stálvirki brúarinnar reist í heild sinni  á bráðabirgðaundirstöðum á vegum framleiðanda í Pólandi áður en stálvirkið verður flutt  með skipi á endanlegan stað og híft upp á á brúarstöplana í Fossvoginum. 

„Verkefni sem endurspeglar styrkleika okkar“

„Fossvogsbrú er verkefni sem hentar okkur fullkomlega. Ístak kemur með sterka staðarþekkingu- og mikla framkvæmdareynslu, og Aarsleff kemur með alþjóðlega  sérfræðiþekkingu í stórum sjóvinnuverkefnum. ”Joint Venture”-samstarfið skilar okkur sameiginlegum styrk sem nýtist beint í svona flóknu verkefni.“ 

– Thomas Kofod Bentsen, Per Aarsleff A/S 

Framundan er metnaðarfullt verk – Afhending sumarið 2028

Samningurinn við Betri samgöngur, er metinn á um 7,6 milljarða var undirritaður 20.nóvember 2025. Undirbúningsvinna er þegar komin í gang og við hlökkum til að hefjast handa. 

Við hjá Ístaki erum spennt að leggja okkur fram við að skapa öruggari, skilvirkari og nútímalegri samgöngur fyrir íbúa og gesti Höfuðborgarsvæðisins – og taka þátt í að móta framtíð Höfuðborgarsvæðisins. 

Helstu verkefnin okkar


Sjá laus störf

Fréttir

Fossvogsbrú
8. maí 2026
Ístak og Aarsleff hafa hafið mikilvægan verkþátt við byggingu Fossvogsbrúar þar sem staurar í undirstöðum brúarinnar eru reknir niður í klöpp. Um er að ræða umfangsmikla vinnu á landi og sjó sem leggur grunninn að burðarvirki brúarinnar og markar tímamót í framkvæmdinni. Verkið felst í niðurrekstri staura sem tryggja stöðugleika og burðargetu brúarinnar en aðstæður í framkvæmdinni gera miklar kröfur til nákvæmni og gæða. Undirbúningsvinna hefur staðið yfir um nokkurt skeið og með þessum áfanga farið að sjá áþreifanlega móta fyrir mannvirkinu. Framkvæmdir ganga vel og vinna við undirstöður mun halda áfram á næstu vikum samhliða öðrum verkþáttum verkefnisins.
4. maí 2026
Ístak hefur nú gefið út sína fyrstu sjálfbærniskýrslu fyrir starfsemi sína á rekstrarárinu 2024/25. Sjálfbærniskýrslugerðin verður eftirleiðis árleg útgáfa sem ætlað er að styðja við sjálfbærnimarkmið félagsins og vonir þess um frekari árangur á því sviði. Sjálfbærniskýrslan inniheldur upplýsingar um umhverfisþætti, félagslegaþætti og stjórnarhætti auk upplýsinga er varða EU taxonomy vegna reksturs félagsins, ásamt því að greina frá helstu markmiðum þess um frekari árangur á sviði þeirra þátta. Sjá skýrslu hér .
17. apríl 2026
Þann 31. mars var undirritaður samningur milli Nýs Landspítala ohf. (NLSH) og Ístaks um innanhússfrágang og stýriverktöku í meðferðarkjarna Landspítalans, frá kjallara K2 upp á 4. hæð. Samningurinn nær jafnframt til heildarstjórnunar og samhæfingar framkvæmda á umræddum hæðum. Um er að ræða einn umfangsmesta samning se
Fyrirlestur um BIM og stafrænar lausnir í byggingariðnaði hjá Ístak
5. mars 2026
BIM dagur Ístaks sýnir hvernig stafrænar lausnir og BIM tækni eru nýttar til að bæta verkefnastjórnun í byggingariðnaði.
23. febrúar 2026
Í gær fór fram formleg vígsla nýs hjúkrunarheimilis Hrafnistu að Boðaþingi í Kópavogi, vígsluathöfnin var hin glæsilegasta og margt var um manninn. Með nýrri byggingu bætast við 64 hjúkrunarrými og eru þau nú 108 talsins á staðnum. Byggingin er um 4.300 m² að stærð og hófust framkvæmdir í apríl 2023. Ístak var alverktaki, og verkkaupar voru Framkvæmdasýsla ríkisins (FSRE) og Kópavogsbær. Ístak er stolt af því að hafa staðið að byggingu þessa nútímalega og vandaða heimilis sem mun bæta þjónustu við eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Við óskum ríkinu, Kópavogsbæ, Hrafnistu og að sjálfsögðu heimilsfólki og starfsfólki til hamingju með nýtt og fallegt hjúkrunarheimili og þökkum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf.
19. janúar 2026
Ístak hefur tekið í notkun fyrstu 100% rafdrifnu stóru vinnuvélina sína og líklega stærstu rafknúnu vinnuvél sem er í notkun á Íslandi í dag....
22. desember 2025
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári - Þökkum öllum okkar samstarfsaðilum og starfsfólki fyrir árið sem er að líða....
22. desember 2025
Ístak er eitt þeirra þriggja verktakafyrirtækja sem hafa gert rammasamning við Veitur, ásamt ÍAV og Stéttarfélaginu. Samningurinn var undirritaður 18. desember og byggir á útboði sem hófst í nóvember ...
Greinar →