Ný rafdrifinn dráttarbíll í flota Ístaks
20. ágúst 2026

Nýlega bættist rafdrifinn Mercedes-Benz eActros 600 við tækjaflota Ístaks.
Um er að ræða þriggja öxla 6x2 dráttarbíl sem verður nýttur í fjölbreyttum verkefnum fyrirtækisins og markar mikilvægt skref í áframhaldandi orkuskiptum Ístaks. Með tilkomu bílsins getur Ístak fært rafvæðinguna inn á nýtt svið starfseminnar og dregið úr notkun jarðefnaeldsneytis í þungaflutningum. Ístak hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á að nýta innlenda, endurnýjanlega orku þar sem því verður við komið.
Í Stapafellsnámu hefur stór hluti efnisvinnslunnar þegar verið rafvæddur, með tilheyrandi samdrætti í notkun jarðefnaeldsneytis. Nýi dráttarbíllinn er eðlilegt framhald þeirrar vegferðar og færir orkuskiptin úr staðbundinni efnisvinnslu yfir í flutninga. Ávinningurinn felst því ekki eingöngu í einum nýjum bíl í flotanum. Með fjárfestingunni byggir Ístak upp þekkingu og reynslu sem nýtist við frekari endurnýjun tækjaflotans, dregur úr losun í eigin starfsemi og eykur möguleika fyrirtækisins á að sinna verkefnum með hagkvæmari og umhverfisvænni hætti. eActros 600 er búinn 621 kWh LFP-rafhlöðum og er hannaður fyrir krefjandi þungaflutninga. Það verður því áhugavert að sjá hvernig bíllinn reynist í daglegum rekstri Ístaks og hvaða tækifæri reynslan af honum skapar fyrir næstu skref í orkuskiptum fyrirtækisins.
Verkefnið er styrkt af Loftlags- og orkusjóði.




Fréttir











