Ístak byggir skóla í Nuuk

18. júlí 2020

Í gær var undirritaður samningur á milli ÍSTAKS og NCD í Nuuk um byggingu nýs skóla í Nuuk á Grænlandi.  

Við erum sérstaklega stolt og ánægð yfir því að hafa landað þessu verkefni en við val á verktaka var tekið tillit til verðs, útfærslu og rekstrarkostnaðar. Samningurinn hljóðar upp á 615 MDKK og er því eitt af stærstu verkefnum sem Ístak hefur tekið að sér. Einnig er þetta stærsti verksamningur sem bæjarfélagið Nuuk hefur gert. 

Hin nýja bygging mun rísa við aðalgötuna í Nuuk, við hlið Hótels Hans Egede, en skammt frá eru einnig aðalverslunarmiðstöð bæjarins og skrifstofur landsstjórnar Grænlands. 

Um er að ræða stærstu skólabyggingu landsins, samtals sextán þúsund fermetrar, og mun hún bæði þjóna sem leik- og grunnskóli. Jafnframt verður byggingin íþrótta- og menningarmiðstöð fyrir bæjarbúa á kvöldin og um helgar en íbúarnir fá aðgang að svokölluðu hjartarými byggingarinnar og íþróttasal. Verður þetta því bygging sem mun þjóna mun öllum bæjarbúum, jafnt ungum sem öldnum.

Helstu verkefnin okkar


Sjá laus störf

Fréttir

23. febrúar 2026
Í gær fór fram formleg vígsla nýs hjúkrunarheimilis Hrafnistu að Boðaþingi í Kópavogi, vígsluathöfnin var hin glæsilegasta og margt var um manninn. Með nýrri byggingu bætast við 64 hjúkrunarrými og eru þau nú 108 talsins á staðnum. Byggingin er um 4.300 m² að stærð og hófust framkvæmdir í apríl 2023. Ístak var alverktaki, og verkkaupar voru Framkvæmdasýsla ríkisins (FSRE) og Kópavogsbær. Ístak er stolt af því að hafa staðið að byggingu þessa nútímalega og vandaða heimilis sem mun bæta þjónustu við eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Við óskum ríkinu, Kópavogsbæ, Hrafnistu og að sjálfsögðu heimilsfólki og starfsfólki til hamingju með nýtt og fallegt hjúkrunarheimili og þökkum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf.
19. janúar 2026
Ístak hefur tekið í notkun fyrstu 100% rafdrifnu stóru vinnuvélina sína og líklega stærstu rafknúnu vinnuvél sem er í notkun á Íslandi í dag....
22. desember 2025
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári - Þökkum öllum okkar samstarfsaðilum og starfsfólki fyrir árið sem er að líða....
22. desember 2025
Ístak er eitt þeirra þriggja verktakafyrirtækja sem hafa gert rammasamning við Veitur, ásamt ÍAV og Stéttarfélaginu. Samningurinn var undirritaður 18. desember og byggir á útboði sem hófst í nóvember ...
4. desember 2025
Ístak fagnaði 55 ára afmæli sínu í Hörpu 20. nóvember síðastliðinn og erum við virkilega glöð með hversu vel kvöldið tókst....
24. nóvember 2025
Við hjá Ístaki erum stolt af því að ganga til samninga við Betri Samgöngur, ásamt systurfélagi Ístaks Per Aarsleff A/S, um eitt af stærstu og glæsilegustu samgöngumannvirkjum næstu ára á Höfuðborgarsv...
20. nóvember 2025
Ístak og Per Aarsleff AS hafa í samstarfi, gengið til samninga við Betri samgöngur um byggingu Fossvogsbrúar....
28. október 2025
Ístak er á meðal 2,6% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla skilyrði Viðskiptablaðsins og Keldunnar og telst því Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2025....