Nýr samningur um frekari uppbyggingu Isavia í Keflavík

24. nóvember 2021

Ístak og Isavia undirrituðu á föstudag samning um gerð nýrrar 1.200 metra akbrautar fyrir flugvélar á Keflavíkurflugvelli og næsta áfanga nýrrar austurálmu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Ístak átti hagkvæmustu tilboðin en verkin voru boðin út á Evrópska efnahagssvæðinu. Heildarkostnaður við bæði verkin er áætlaður um 24,6 milljarðar. 

Í fréttatilkynningu Isavia kemur fram að nýja akbrautin tengir flugbraut við hlað flugstöðvarinnar og er henni ætlað að stuðla að bættri nýtingu óháð ytri skilyrðum og greiða fyrir umferð flugvéla eftir lendingu. Hluti af verkinu er uppsetning ljósabúnaðar. Áætlað er að verkinu ljúki fyrir lok næsta árs. Tilboð Ístaks í verkið nam rúmlega 940 milljónum króna. 

„Þetta eru spennandi verkefni,“ segir Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks. „Við höfum öðlast mikla og dýrmæta reynslu við að vinna að uppbyggingarverkefnum hér á Keflavíkurflugvelli, nú síðast við fyrstu áfanga austurálmu flugstöðvarinnar, sem við höldum nú áfram með. Svo hefjumst við handa úti á vallarsvæðinu. Um 80-100 manns munu vinna að þessum tveimur verkefnum. Við notum að hluta efni sem fallið hefur til við aðrar framkvæmdir á svæðinu. Það sparar peninga og dregur úr umhverfisáhrifum.“ 

Lokið er jarðvinnu fyrir nýja austurálmu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, sem Ístak annaðist. Fyrirtækið átti hagstæðasta tilboð í burðarvirki og veðurkápu hússins, tæpa 4,5 milljarða króna. Byggingin er þrjár hæðir og 21 þúsund fermetrar. Burðarvirkið skiptist í djúpan steyptan kjallara sem hýsir færibandasal. Á fyrstu hæð verður stækkun á töskusal fyrir ný færibönd. Verslunar- og veitingasvæði ásamt biðsvæðum farþega stækka um 4000 fermetra. Miðað er við að þessum áfanga ljúki næsta vor.  

„Þetta er mikilvægur áfangi í þróun Keflavíkurflugvallar. Þessi nýja akbraut greiðir mjög fyrir umferð flugvéla. Tíminn frá lendingu að flughlaði styttist sem dregur úr umhverfisáhrifum vegna útblásturs. Þá mun öryggi umferðar á vellinum aukast enn með þessari upplýstu akbraut. Svo er gott að sjá að vinna við austurálmuna er á áætlun. Hún verður að sama skapi gríðarlega mikilvæg viðbót við flugstöðina,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. 

Helstu verkefnin okkar


Sjá laus störf

Fréttir

Fossvogsbrú
8. maí 2026
Ístak og Aarsleff hafa hafið mikilvægan verkþátt við byggingu Fossvogsbrúar þar sem staurar í undirstöðum brúarinnar eru reknir niður í klöpp. Um er að ræða umfangsmikla vinnu á landi og sjó sem leggur grunninn að burðarvirki brúarinnar og markar tímamót í framkvæmdinni. Verkið felst í niðurrekstri staura sem tryggja stöðugleika og burðargetu brúarinnar en aðstæður í framkvæmdinni gera miklar kröfur til nákvæmni og gæða. Undirbúningsvinna hefur staðið yfir um nokkurt skeið og með þessum áfanga farið að sjá áþreifanlega móta fyrir mannvirkinu. Framkvæmdir ganga vel og vinna við undirstöður mun halda áfram á næstu vikum samhliða öðrum verkþáttum verkefnisins.
4. maí 2026
Ístak hefur nú gefið út sína fyrstu sjálfbærniskýrslu fyrir starfsemi sína á rekstrarárinu 2024/25. Sjálfbærniskýrslugerðin verður eftirleiðis árleg útgáfa sem ætlað er að styðja við sjálfbærnimarkmið félagsins og vonir þess um frekari árangur á því sviði. Sjálfbærniskýrslan inniheldur upplýsingar um umhverfisþætti, félagslegaþætti og stjórnarhætti auk upplýsinga er varða EU taxonomy vegna reksturs félagsins, ásamt því að greina frá helstu markmiðum þess um frekari árangur á sviði þeirra þátta. Sjá skýrslu hér .
17. apríl 2026
Þann 31. mars var undirritaður samningur milli Nýs Landspítala ohf. (NLSH) og Ístaks um innanhússfrágang og stýriverktöku í meðferðarkjarna Landspítalans, frá kjallara K2 upp á 4. hæð. Samningurinn nær jafnframt til heildarstjórnunar og samhæfingar framkvæmda á umræddum hæðum. Um er að ræða einn umfangsmesta samning se
Fyrirlestur um BIM og stafrænar lausnir í byggingariðnaði hjá Ístak
5. mars 2026
BIM dagur Ístaks sýnir hvernig stafrænar lausnir og BIM tækni eru nýttar til að bæta verkefnastjórnun í byggingariðnaði.
23. febrúar 2026
Í gær fór fram formleg vígsla nýs hjúkrunarheimilis Hrafnistu að Boðaþingi í Kópavogi, vígsluathöfnin var hin glæsilegasta og margt var um manninn. Með nýrri byggingu bætast við 64 hjúkrunarrými og eru þau nú 108 talsins á staðnum. Byggingin er um 4.300 m² að stærð og hófust framkvæmdir í apríl 2023. Ístak var alverktaki, og verkkaupar voru Framkvæmdasýsla ríkisins (FSRE) og Kópavogsbær. Ístak er stolt af því að hafa staðið að byggingu þessa nútímalega og vandaða heimilis sem mun bæta þjónustu við eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Við óskum ríkinu, Kópavogsbæ, Hrafnistu og að sjálfsögðu heimilsfólki og starfsfólki til hamingju með nýtt og fallegt hjúkrunarheimili og þökkum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf.
19. janúar 2026
Ístak hefur tekið í notkun fyrstu 100% rafdrifnu stóru vinnuvélina sína og líklega stærstu rafknúnu vinnuvél sem er í notkun á Íslandi í dag....
22. desember 2025
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári - Þökkum öllum okkar samstarfsaðilum og starfsfólki fyrir árið sem er að líða....
22. desember 2025
Ístak er eitt þeirra þriggja verktakafyrirtækja sem hafa gert rammasamning við Veitur, ásamt ÍAV og Stéttarfélaginu. Samningurinn var undirritaður 18. desember og byggir á útboði sem hófst í nóvember ...
Greinar →