Nýtt svið - Innri þjónusta
22. janúar 2025

Hjá Ístak leggjum við stöðugt áherslu á að finna leiðir til að gera enn betur.
Til að tryggja framúrskarandi þjónustu við verkefnin okkar kynnum við nú nýtt svið, Innri þjónusta. Þar sem við sameinum fjórar stoðdeildir undir eina heild til að styrkja stöðu okkar sem leiðandi verktaka á Íslandi.
Þessar deildir eru:
- Gæða- og öryggisdeild
- BIM og tækniþróun
- Áætlanadeild
- Innkaupadeild
Thomas Skov Jensen leiðir nýja sviðið og hefur jafnframt tekið sæti í framkvæmdastjórn.
Markmið breytinganna:
- Að færa þjónustuna nær verkefnum okkar og tryggja markvissa og skilvirka þjónustu.
- Að veita stjórnendum og tæknimönnum heildstæða og faglega þjónustu sem stuðlar að betri þekkingarmiðlun og bættu upplýsingaflæði.
- Að styðja þróun verkefna og tilboðsvinnu með því að samræma vinnubrögð milli kjarnadeilda.
Ávinningur breytinganna:
- Aukið öryggi og gæði með því að gera ávallt betur í framkvæmdum.
- Betri stuðningur við hvert verkefni frá upphafi til enda.
- Framsæknari nálgun á verkefni með því að hámarka nýtingu á tækni og sérhæfðri þekkingu innan Ístak.
Við erum sannfærð um að þessar breytingar efli getu okkar til að mæta framtíðaráskorunum og aðstoða við að tryggja framúrskarandi árangur í öllum verkefnum okkar.
Fréttir

8. maí 2026
Ístak og Aarsleff hafa hafið mikilvægan verkþátt við byggingu Fossvogsbrúar þar sem staurar í undirstöðum brúarinnar eru reknir niður í klöpp. Um er að ræða umfangsmikla vinnu á landi og sjó sem leggur grunninn að burðarvirki brúarinnar og markar tímamót í framkvæmdinni. Verkið felst í niðurrekstri staura sem tryggja stöðugleika og burðargetu brúarinnar en aðstæður í framkvæmdinni gera miklar kröfur til nákvæmni og gæða. Undirbúningsvinna hefur staðið yfir um nokkurt skeið og með þessum áfanga farið að sjá áþreifanlega móta fyrir mannvirkinu. Framkvæmdir ganga vel og vinna við undirstöður mun halda áfram á næstu vikum samhliða öðrum verkþáttum verkefnisins.

4. maí 2026
Ístak hefur nú gefið út sína fyrstu sjálfbærniskýrslu fyrir starfsemi sína á rekstrarárinu 2024/25. Sjálfbærniskýrslugerðin verður eftirleiðis árleg útgáfa sem ætlað er að styðja við sjálfbærnimarkmið félagsins og vonir þess um frekari árangur á því sviði. Sjálfbærniskýrslan inniheldur upplýsingar um umhverfisþætti, félagslegaþætti og stjórnarhætti auk upplýsinga er varða EU taxonomy vegna reksturs félagsins, ásamt því að greina frá helstu markmiðum þess um frekari árangur á sviði þeirra þátta. Sjá skýrslu hér .

17. apríl 2026
Þann 31. mars var undirritaður samningur milli Nýs Landspítala ohf. (NLSH) og Ístaks um innanhússfrágang og stýriverktöku í meðferðarkjarna Landspítalans, frá kjallara K2 upp á 4. hæð. Samningurinn nær jafnframt til heildarstjórnunar og samhæfingar framkvæmda á umræddum hæðum.
Um er að ræða einn umfangsmesta samning se

23. febrúar 2026
Í gær fór fram formleg vígsla nýs hjúkrunarheimilis Hrafnistu að Boðaþingi í Kópavogi, vígsluathöfnin var hin glæsilegasta og margt var um manninn. Með nýrri byggingu bætast við 64 hjúkrunarrými og eru þau nú 108 talsins á staðnum. Byggingin er um 4.300 m² að stærð og hófust framkvæmdir í apríl 2023. Ístak var alverktaki, og verkkaupar voru Framkvæmdasýsla ríkisins (FSRE) og Kópavogsbær. Ístak er stolt af því að hafa staðið að byggingu þessa nútímalega og vandaða heimilis sem mun bæta þjónustu við eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Við óskum ríkinu, Kópavogsbæ, Hrafnistu og að sjálfsögðu heimilsfólki og starfsfólki til hamingju með nýtt og fallegt hjúkrunarheimili og þökkum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf.






