Samningur við Veitur

22. desember 2025

Ístak er eitt þeirra þriggja verktakafyrirtækja sem hafa gert rammasamning við Veitur, ásamt ÍAV og Stéttarfélaginu. Samningurinn var undirritaður 18. desember og byggir á útboði sem hófst í nóvember 2024 um viðhald og þjónustu á veitukerfum. 

Útboðið fól í sér nýjar áherslur þar sem lögð var aukin áhersla á heildarlausnir til að auka hagkvæmni, skilvirkni og fyrirsjáanleika, auk þess að bæta þjónustu og gæði til viðskiptavina Veitna. Um er að ræða fyrsta rammasamningsútboð Veitna af þessu umfangi, þar sem viðhald lagna, heimlagnir og nýframkvæmdir eru sameinuð undir einum samningi. Samningurinn tekur til allt að 7,5 ára og inniheldur um 3.600 tilboðsliði. 

Karl Andreassen, forstjóri Ístaks, segir að samningurinn endurspegli mikilvægan áfanga í samstarfi fyrirtækisins við Veitur: 

„Ístak hefur ávallt lagt áherslu á faglega nálgun við úrlausn verkefna. Kröfur Veitna í rammasamningsútboðinu voru metnaðarfullar hvað snýr að gæðum, öryggismálum, umhverfismálum og faglegri hæfni. Það eru kröfur sem falla vel að stefnu Ístaks og því sérstakt gleðiefni fyrir fyrirtækið að vera eitt þeirra þriggja verktakafyrirtækja sem eru aðilar að samningnum. Við höfum átt í löngu og farsælu samstarfi við Veitur og fyrirrennara þeirra og mun aðild að rammasamningnum treysta það samstarf enn frekar í sessi.“ 

Helstu verkefnin okkar


Sjá laus störf

Fréttir

Fossvogsbrú
8. maí 2026
Ístak og Aarsleff hafa hafið mikilvægan verkþátt við byggingu Fossvogsbrúar þar sem staurar í undirstöðum brúarinnar eru reknir niður í klöpp. Um er að ræða umfangsmikla vinnu á landi og sjó sem leggur grunninn að burðarvirki brúarinnar og markar tímamót í framkvæmdinni. Verkið felst í niðurrekstri staura sem tryggja stöðugleika og burðargetu brúarinnar en aðstæður í framkvæmdinni gera miklar kröfur til nákvæmni og gæða. Undirbúningsvinna hefur staðið yfir um nokkurt skeið og með þessum áfanga farið að sjá áþreifanlega móta fyrir mannvirkinu. Framkvæmdir ganga vel og vinna við undirstöður mun halda áfram á næstu vikum samhliða öðrum verkþáttum verkefnisins.
4. maí 2026
Ístak hefur nú gefið út sína fyrstu sjálfbærniskýrslu fyrir starfsemi sína á rekstrarárinu 2024/25. Sjálfbærniskýrslugerðin verður eftirleiðis árleg útgáfa sem ætlað er að styðja við sjálfbærnimarkmið félagsins og vonir þess um frekari árangur á því sviði. Sjálfbærniskýrslan inniheldur upplýsingar um umhverfisþætti, félagslegaþætti og stjórnarhætti auk upplýsinga er varða EU taxonomy vegna reksturs félagsins, ásamt því að greina frá helstu markmiðum þess um frekari árangur á sviði þeirra þátta. Sjá skýrslu hér .
17. apríl 2026
Þann 31. mars var undirritaður samningur milli Nýs Landspítala ohf. (NLSH) og Ístaks um innanhússfrágang og stýriverktöku í meðferðarkjarna Landspítalans, frá kjallara K2 upp á 4. hæð. Samningurinn nær jafnframt til heildarstjórnunar og samhæfingar framkvæmda á umræddum hæðum. Um er að ræða einn umfangsmesta samning se
Fyrirlestur um BIM og stafrænar lausnir í byggingariðnaði hjá Ístak
5. mars 2026
BIM dagur Ístaks sýnir hvernig stafrænar lausnir og BIM tækni eru nýttar til að bæta verkefnastjórnun í byggingariðnaði.
23. febrúar 2026
Í gær fór fram formleg vígsla nýs hjúkrunarheimilis Hrafnistu að Boðaþingi í Kópavogi, vígsluathöfnin var hin glæsilegasta og margt var um manninn. Með nýrri byggingu bætast við 64 hjúkrunarrými og eru þau nú 108 talsins á staðnum. Byggingin er um 4.300 m² að stærð og hófust framkvæmdir í apríl 2023. Ístak var alverktaki, og verkkaupar voru Framkvæmdasýsla ríkisins (FSRE) og Kópavogsbær. Ístak er stolt af því að hafa staðið að byggingu þessa nútímalega og vandaða heimilis sem mun bæta þjónustu við eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Við óskum ríkinu, Kópavogsbæ, Hrafnistu og að sjálfsögðu heimilsfólki og starfsfólki til hamingju með nýtt og fallegt hjúkrunarheimili og þökkum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf.
19. janúar 2026
Ístak hefur tekið í notkun fyrstu 100% rafdrifnu stóru vinnuvélina sína og líklega stærstu rafknúnu vinnuvél sem er í notkun á Íslandi í dag....
22. desember 2025
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári - Þökkum öllum okkar samstarfsaðilum og starfsfólki fyrir árið sem er að líða....
4. desember 2025
Ístak fagnaði 55 ára afmæli sínu í Hörpu 20. nóvember síðastliðinn og erum við virkilega glöð með hversu vel kvöldið tókst....
Greinar →