Undirritun samninga við Félagsstofnun stúdenta vegna Hótel Sögu
3. júní 2022

Í gær skrifuðu Ístak og Félagsstofnun stúdenta undir tvo samninga. Undirritaður var samningur um utanhússviðgerðir þar sem allt ytra byrði hússins verður lagfært. Skipt um klæðningu á þaki, gluggaskipti á hluta hússins, glerskipti og gluggaviðgerðir, múrviðgerðir, málun o.fl. Áætluð verklok á því verkefni eru í september 2023. Hinn samningurinn var um uppbyggingu á 113 stúdíóíbúðum í norðurálmu hússins. Íbúðirnar verða teknar í notkun fyrri hluta næsta árs.
Í dag eru um 45 manns starfandi á vegum Ístaks í húsinu ef með eru taldir starfsmenn undirverktaka. Reikna má með að þeim fjölgi enn frekar á næstu vikum.
Fréttir

23. febrúar 2026
Í gær fór fram formleg vígsla nýs hjúkrunarheimilis Hrafnistu að Boðaþingi í Kópavogi, vígsluathöfnin var hin glæsilegasta og margt var um manninn. Með nýrri byggingu bætast við 64 hjúkrunarrými og eru þau nú 108 talsins á staðnum. Byggingin er um 4.300 m² að stærð og hófust framkvæmdir í apríl 2023. Ístak var alverktaki, og verkkaupar voru Framkvæmdasýsla ríkisins (FSRE) og Kópavogsbær. Ístak er stolt af því að hafa staðið að byggingu þessa nútímalega og vandaða heimilis sem mun bæta þjónustu við eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Við óskum ríkinu, Kópavogsbæ, Hrafnistu og að sjálfsögðu heimilsfólki og starfsfólki til hamingju með nýtt og fallegt hjúkrunarheimili og þökkum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf.









