Verk á Keflavíkurflugvelli
5. ágúst 2022

Ístak er með í gangi fjölmörg verkefni fyrir Isavia á Keflavíkurflugvelli þeirra á meðal er gerð nýrrar flugvélarakbrautar TWY MIKE. Framkvæmdir á flugvellarsvæði hefur mikil áhrif á flugumferð og á meðan verkefni stendur verður hluta flugvallar lokar bæði flugbrautir og akbrautir, farþegar verða mest var við framkvæmdir þar sem aksturstími á akbrautum getur lengst verulega, Til að þetta sé hægt er dagleg vinna skipulögð með flugturni nú yfir mesta álagstímann.
Verkið hefur gengið vel í sumar eftir erfiðan vetur, rúmlega 40 starfsmenn eru á verkstað hverju sinni, búið er að vinna um 60% af verki, gert er ráð fyrir að verki ljúki í lok árs og ný akbraut verði kominn í notkun í vor.
Fréttir

23. febrúar 2026
Í gær fór fram formleg vígsla nýs hjúkrunarheimilis Hrafnistu að Boðaþingi í Kópavogi, vígsluathöfnin var hin glæsilegasta og margt var um manninn. Með nýrri byggingu bætast við 64 hjúkrunarrými og eru þau nú 108 talsins á staðnum. Byggingin er um 4.300 m² að stærð og hófust framkvæmdir í apríl 2023. Ístak var alverktaki, og verkkaupar voru Framkvæmdasýsla ríkisins (FSRE) og Kópavogsbær. Ístak er stolt af því að hafa staðið að byggingu þessa nútímalega og vandaða heimilis sem mun bæta þjónustu við eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Við óskum ríkinu, Kópavogsbæ, Hrafnistu og að sjálfsögðu heimilsfólki og starfsfólki til hamingju með nýtt og fallegt hjúkrunarheimili og þökkum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf.









