Verk og vit 2022

30. mars 2022

Stórsýningin Verk og vit for fram núna um helgina í Laugardalshöllinni. Fjöldi manns heimsóttu bás Ístaks á sýningunni. Auk ráðherra og forystufólks iðnaðar- og atvinnulífs fengum við fjölda fyrrverandi og núverandi starfsmanna í heimsókn auk annarra sýningargesta. Við hlið bássins komum við upp fyrirlestraaðstöðu og héldum þar kynningar á sögu Ístaks og BIM fyrir vel á annað hundrað nemenda, bæði í húsasmíði, húsgagnasmíði, múrverki og byggingatæknifræði. 

Hér að neðan eru nokkrar ljósmyndir frá sýningunni.

Helstu verkefnin okkar


Sjá laus störf

Fréttir

23. febrúar 2026
Í gær fór fram formleg vígsla nýs hjúkrunarheimilis Hrafnistu að Boðaþingi í Kópavogi, vígsluathöfnin var hin glæsilegasta og margt var um manninn. Með nýrri byggingu bætast við 64 hjúkrunarrými og eru þau nú 108 talsins á staðnum. Byggingin er um 4.300 m² að stærð og hófust framkvæmdir í apríl 2023. Ístak var alverktaki, og verkkaupar voru Framkvæmdasýsla ríkisins (FSRE) og Kópavogsbær. Ístak er stolt af því að hafa staðið að byggingu þessa nútímalega og vandaða heimilis sem mun bæta þjónustu við eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Við óskum ríkinu, Kópavogsbæ, Hrafnistu og að sjálfsögðu heimilsfólki og starfsfólki til hamingju með nýtt og fallegt hjúkrunarheimili og þökkum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf.
19. janúar 2026
Ístak hefur tekið í notkun fyrstu 100% rafdrifnu stóru vinnuvélina sína og líklega stærstu rafknúnu vinnuvél sem er í notkun á Íslandi í dag....
22. desember 2025
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári - Þökkum öllum okkar samstarfsaðilum og starfsfólki fyrir árið sem er að líða....
22. desember 2025
Ístak er eitt þeirra þriggja verktakafyrirtækja sem hafa gert rammasamning við Veitur, ásamt ÍAV og Stéttarfélaginu. Samningurinn var undirritaður 18. desember og byggir á útboði sem hófst í nóvember ...
4. desember 2025
Ístak fagnaði 55 ára afmæli sínu í Hörpu 20. nóvember síðastliðinn og erum við virkilega glöð með hversu vel kvöldið tókst....
24. nóvember 2025
Við hjá Ístaki erum stolt af því að ganga til samninga við Betri Samgöngur, ásamt systurfélagi Ístaks Per Aarsleff A/S, um eitt af stærstu og glæsilegustu samgöngumannvirkjum næstu ára á Höfuðborgarsv...
20. nóvember 2025
Ístak og Per Aarsleff AS hafa í samstarfi, gengið til samninga við Betri samgöngur um byggingu Fossvogsbrúar....
28. október 2025
Ístak er á meðal 2,6% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla skilyrði Viðskiptablaðsins og Keldunnar og telst því Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2025....