Viðvörun
12. apríl 2023

Ístak hefur fengið ábendingar um að óprúttinn aðili hafi verið að senda út pósta og fjárfesta í vörum undir nafni Ístaks.
Við viljum leggja áherslu við viðskiptafyrirtæki okkar að vera vakandi þegar tekið er út vörur í nafni fyrirtækisins. Ef einhver vafi vaknar upp, hvetjum við fyrirtæki til að hafa samband og staðfesta starfsmann í síma 530-2700 eða á istak@istak.is.
Fréttir

23. febrúar 2026
Í gær fór fram formleg vígsla nýs hjúkrunarheimilis Hrafnistu að Boðaþingi í Kópavogi, vígsluathöfnin var hin glæsilegasta og margt var um manninn. Með nýrri byggingu bætast við 64 hjúkrunarrými og eru þau nú 108 talsins á staðnum. Byggingin er um 4.300 m² að stærð og hófust framkvæmdir í apríl 2023. Ístak var alverktaki, og verkkaupar voru Framkvæmdasýsla ríkisins (FSRE) og Kópavogsbær. Ístak er stolt af því að hafa staðið að byggingu þessa nútímalega og vandaða heimilis sem mun bæta þjónustu við eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Við óskum ríkinu, Kópavogsbæ, Hrafnistu og að sjálfsögðu heimilsfólki og starfsfólki til hamingju með nýtt og fallegt hjúkrunarheimili og þökkum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf.









