Fréttir af hringvegi um Hornarfjarðarfljót

5. júní 2023

Hornafjarðarfljót - Hringvegur  

Framkvæmdin er í sveitarfélaginu Hornafirði í Austur-Skaftafellssýslu. Verkið felst í styttingu Hringvegarins um 12 km með gerð vegar er kemur til með að liggja yfir Hornafjörð norðanverðan. 

Verkinu er skipt í fimm verkhluta. Verkhluti 8.01 felst í nýlögn Hringvegar (1) frá stöð 0 rétt vestan Hólmsvegar (9822) að stöð 18760 vestan Dynjandisvegar (9721) ásamt tengivegum og tengingum. Í verkhluta 8.02 felst smíði 52 m langrar brúar á Djúpá, í verkhluta 8.03 felst smíði 250 m langrar brúar á Hornafjarðarfljót, í verkhluta 8.04 felst smíði 114 m langrar brúar á Hoffellsá, í verkhluta 8.05 felst smíði 52 m langrar brúar á Bergá. 

Það er góður gangur í verkinu eftir mikinn frost vetur og tala heimamenn um að þeir muni ekki eftir svona miklum frosthörkum í langan tíma. Því fylgdi síðan mikið vatnsveður með roki og seinna sandfoki. Áherslan hjá Ístak þessa dagana er að fylla í veginn til austurs svo hægt sé að komast að Hoffellsá. Búið er að fylla farglag á Djúpá og gera tengiveginn milli nýja þjóðvegar 1 og gamla þjóðvegar 1. Verið er að bíða eftir sigi í brúarstæði Hornafjarðaráar og eitt lag eftir þar. Þá er verið að vinna í farglagi í Bergá en það þarf á að standa í eitt ár, hinar styttra. Það er mikið af sigplötum sem þarf að setja niður og mæla reglulega. Verkstæðis skemma er að verða klár og verður það mikill munur fyrir starfsmenn, en það hefur truflað þjónustu við tækin að stundum er svo mikið sandfok að ekki er óhætt að opna viðkvæma hluti tækja. Við höfum náð að fylla um 70.000 m3 núna í maí. Við notum stórvirk tæki við framkvæmdina eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Brúarvinna hefst í haust þegar sigtími er liðinn. 

Verkkaupi: Vegagerðin

Helstu verkefnin okkar


Sjá laus störf

Fréttir

23. febrúar 2026
Í gær fór fram formleg vígsla nýs hjúkrunarheimilis Hrafnistu að Boðaþingi í Kópavogi, vígsluathöfnin var hin glæsilegasta og margt var um manninn. Með nýrri byggingu bætast við 64 hjúkrunarrými og eru þau nú 108 talsins á staðnum. Byggingin er um 4.300 m² að stærð og hófust framkvæmdir í apríl 2023. Ístak var alverktaki, og verkkaupar voru Framkvæmdasýsla ríkisins (FSRE) og Kópavogsbær. Ístak er stolt af því að hafa staðið að byggingu þessa nútímalega og vandaða heimilis sem mun bæta þjónustu við eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Við óskum ríkinu, Kópavogsbæ, Hrafnistu og að sjálfsögðu heimilsfólki og starfsfólki til hamingju með nýtt og fallegt hjúkrunarheimili og þökkum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf.
19. janúar 2026
Ístak hefur tekið í notkun fyrstu 100% rafdrifnu stóru vinnuvélina sína og líklega stærstu rafknúnu vinnuvél sem er í notkun á Íslandi í dag....
22. desember 2025
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári - Þökkum öllum okkar samstarfsaðilum og starfsfólki fyrir árið sem er að líða....
22. desember 2025
Ístak er eitt þeirra þriggja verktakafyrirtækja sem hafa gert rammasamning við Veitur, ásamt ÍAV og Stéttarfélaginu. Samningurinn var undirritaður 18. desember og byggir á útboði sem hófst í nóvember ...
4. desember 2025
Ístak fagnaði 55 ára afmæli sínu í Hörpu 20. nóvember síðastliðinn og erum við virkilega glöð með hversu vel kvöldið tókst....
24. nóvember 2025
Við hjá Ístaki erum stolt af því að ganga til samninga við Betri Samgöngur, ásamt systurfélagi Ístaks Per Aarsleff A/S, um eitt af stærstu og glæsilegustu samgöngumannvirkjum næstu ára á Höfuðborgarsv...
20. nóvember 2025
Ístak og Per Aarsleff AS hafa í samstarfi, gengið til samninga við Betri samgöngur um byggingu Fossvogsbrúar....
28. október 2025
Ístak er á meðal 2,6% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla skilyrði Viðskiptablaðsins og Keldunnar og telst því Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2025....