Utanríkisráðherra heimsækir Nuuk
26. júní 2023

Þann 23. júní 2023 kom Utanríkisráðherra Íslands Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ásamt aðalræðismanni Íslands í Nuuk Geir Oddsyni í opinbera heimsókn á vinnustað Ístaks í Nuuk.
Ístak vinnur að því að byggja leik og grunnskóla í Nuuk. Nýi skólinn leysir af hólmi tvo eldri skóla og gert er ráð fyrir að tólf hundruð nemendur stundi nám við hann. Skólinn stendur í miðbæ Nuuk við hlið Hótels Hans Egede, skammt frá stjórnarráði Grænlands og aðalverslunarmiðstöð bæjarins. Skólinn mun einnig þjóna hlutverks menningarmiðstöðvar og verður kærkomið hjartarými fyrir bæjarbúa Nuuk.
Fréttir

23. febrúar 2026
Í gær fór fram formleg vígsla nýs hjúkrunarheimilis Hrafnistu að Boðaþingi í Kópavogi, vígsluathöfnin var hin glæsilegasta og margt var um manninn. Með nýrri byggingu bætast við 64 hjúkrunarrými og eru þau nú 108 talsins á staðnum. Byggingin er um 4.300 m² að stærð og hófust framkvæmdir í apríl 2023. Ístak var alverktaki, og verkkaupar voru Framkvæmdasýsla ríkisins (FSRE) og Kópavogsbær. Ístak er stolt af því að hafa staðið að byggingu þessa nútímalega og vandaða heimilis sem mun bæta þjónustu við eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Við óskum ríkinu, Kópavogsbæ, Hrafnistu og að sjálfsögðu heimilsfólki og starfsfólki til hamingju með nýtt og fallegt hjúkrunarheimili og þökkum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf.









