Ístak hélt BIM dag Ístaks í annað sinn
5. mars 2026

Ístak hélt BIM dag Ístaks í annað sinn fimmtudaginn 5. mars. Viðburðurinn fór fram í Háteigi á Grand Hótel og var afar vel sóttur en um 120 manns mættu til að fylgjast með dagskránni.
Markmið BIM dagsins er að miðla þekkingu og deila reynslu af notkun BIM og annarra stafrænna lausna í verkefnum innan Ístaks og víðar innan Per Aarsleff samstæðunnar.
Fulltrúar frá systurfélögum okkar, Per Aarsleff og Wicotec Kirkebjerg, héldu erindi um sína reynslu af stafrænum lausnum í framkvæmdum. Þá kynnti BIM-deild Ístaks einnig ný verkfæri sem eru að koma til notkunar, meðal annars áhættumatstól og VerkAI.
Viðburðurinn fór fram úr okkar væntingum og við þökkum öllum fyrir frábæra þátttöku👏
Fréttir

17. apríl 2026
Þann 31. mars var undirritaður samningur milli Nýs Landspítala ohf. (NLSH) og Ístaks um innanhússfrágang og stýriverktöku í meðferðarkjarna Landspítalans, frá kjallara K2 upp á 4. hæð. Samningurinn nær jafnframt til heildarstjórnunar og samhæfingar framkvæmda á umræddum hæðum.
Um er að ræða einn umfangsmesta samning se

23. febrúar 2026
Í gær fór fram formleg vígsla nýs hjúkrunarheimilis Hrafnistu að Boðaþingi í Kópavogi, vígsluathöfnin var hin glæsilegasta og margt var um manninn. Með nýrri byggingu bætast við 64 hjúkrunarrými og eru þau nú 108 talsins á staðnum. Byggingin er um 4.300 m² að stærð og hófust framkvæmdir í apríl 2023. Ístak var alverktaki, og verkkaupar voru Framkvæmdasýsla ríkisins (FSRE) og Kópavogsbær. Ístak er stolt af því að hafa staðið að byggingu þessa nútímalega og vandaða heimilis sem mun bæta þjónustu við eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Við óskum ríkinu, Kópavogsbæ, Hrafnistu og að sjálfsögðu heimilsfólki og starfsfólki til hamingju með nýtt og fallegt hjúkrunarheimili og þökkum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf.
















