Skrifað undir samning við NLSH
17. apríl 2026

Þann 31. mars var undirritaður samningur milli Nýs Landspítala ohf. (NLSH) og Ístaks um innanhússfrágang og stýriverktöku í meðferðarkjarna Landspítalans, frá kjallara K2 upp á 4. hæð. Samningurinn nær jafnframt til heildarstjórnunar og samhæfingar framkvæmda á umræddum hæðum.
Um er að ræða einn umfangsmesta samning sem gerður hefur verið vegna framkvæmda á Hringbrautarsvæðinu til þessa, en heildarverðmæti hans nemur 15,9 milljörðum króna með virðisaukaskatti.
Ístak hefur áður komið að uppbyggingu meðferðarkjarnans og sá meðal annars um allan þakfrágang byggingarinnar.
Auk þess er fyrirtækið nú að ljúka við byggingu 4.500 fermetra endurhæfingarspítala á Grensási, samkvæmt samningi sem gerður var við NLSH árið 2024.
Samningurinn var undirritaður af Ölmu D. Möller, heilbrigðisráðherra, og Gísla H. Guðmundssyni, framkvæmdastjóra byggingasviðs Ístaks. Vottar fyrir hönd NLSH voru Árni Kristjánsson, staðarverkfræðingur, og Helgi Davíð Ingason, sviðsstjóri hönnunarsviðs.
Fréttir










