Öryggisdagur Ístaks
8. júní 2026

Öryggisdagur Ístaks var haldinn þann 29. maí sl. Markmið dagsins er að minna á mikilvægi skipulegs vinnuverndarstarfs með því að brjóta upp hefðbundna dagskrá og gera eitthvað eftirminnilegt saman, með öryggi og vinnuvernd í forgrunni.
Í tilefni dagsins var boðið upp á fræðslu, samtöl og æfingar á vinnustöðum Ístaks vítt og breitt um landið sem og á Grænlandi. Þemað í ár var Viðbragðsgeta vegna óvæntra atburða, þar sem lögð var áhersla á að rýna viðbragðsáætlanir á hverjum stað ásamt því að æfa viðbragð við hinum ýmsu ógnum í umhverfinu. Í starfsemi Ístaks eru fjölmörg atriði sem þarf að huga að, til dæmis bruni í byggingum, bruni í vélum og tækjum, eldsumbrot og vatnsflóð svo eitthvað sé nefnt.
Á mörgum stöðum var skipulögð fræðsla um eldvarnir og viðbrögð við bruna þar sem bæði starfsfólk Ístaks og undirverktaka okkar fengu að spreyta sig á notkun slökkvitækja og annars slökkvibúnaðar. Til að kanna viðbragðsgetu voru haldnar rýmingaræfingar þar sem skrifstofuhúsnæði, vinnubúðir og heilu vinnusvæðin voru rýmd. Þess ber að geta að sum vinnusvæðin okkar spanna tugi kílómetra en með góðu skipulagi og upplýsingaflæði tókst að rýma þau hratt og vel.
Dagurinn heppnaðist vel og við höfum bætt við okkur bæði nýrri þekkingu og reynslu sem getir okkur enn betur í stakk búin til að takast á við óvænta atburði. Öryggisdagurinn bauð ekki síður upp á tækifæri til að rýna enn betur á hverjum stað og hvaða áskoranir eru fyrir hendi í vinnuumhverfinu og mikil umræða var um fyrri atvik og hvernig megi fyrirbyggja sambærileg atvik í framtíðinni.
Við viljum þakka sérstaklega þeim sem komu að verkefninu með okkur, bæði leiðbeinendum og þeim slökkviliðum sem komu að fræðslunni og gerðu daginn enn eftirminnilegri.
Fréttir










