Rafvæðing efnisvinnslu í Stapafellsnámu
20. maí 2026

Ístak hefur á undanförnum misserum lagt ríka áherslu á að draga úr umhverfisáhrifum starfsemi sinnar með markvissri rafvæðingu í starfsemi sinni, þ. á m. við efnisvinnslu í Stapafellsnámu. Í námunni er nú unnið með 100% hreinni íslenskri raforku, sem er stórt skref í átt að sjálfbærari rekstri félagsins.
Umfangsmikil uppbygging hefur orðið á innviðum rafmagns á svæðinu og hefur m.a. verið tekin í notkun ný 1.250 Ampera heimtaug, settur hefur verið upp sérstakur heimtaugargámur fyrir hleðslustöð og dreifingu raforku innan svæðisins auk þess sem komið hefur verið fyrir 200 kW DC hraðhleðslustöð til hleðslu á vinnuvélum, svo sem hjólaskóflum og dráttarbílum.
Mölun steinefna með rafmagni eingöngu hófst í maí 2026 í samstarfi við Skútaberg en kónbrjótsamstæðan á svæðinu er að fullu rafdrifin auk þess sem rafknúin LiuGong hjólaskófla annast efnisflutninga að og frá brjótum. Eftir því sem best er vitað er þetta í fyrsta sinn sem efnisvinnsla af þessu tagi er framkvæmd með þessum hætti hér á landi, þ.e. að fullu rafknúin.
Með rafvæðingu efnisvinnslunnar er dregið umtalsvert úr umhverfisáhrifum af námvinnslu á svæðinu og má áætla að við vinnslu um 30.000 m³ af efni sparist um 75.000 lítrar af jarðefnaeldsneyti sem samsvari losun á um 201 tonni af CO2. Reynslan af rafdrifinni LiuGong 870 hjólaskóflu hefur reynst afar góð og hefur vélin staðið undir öllum væntingum í krefjandi aðstæðum við námuvinnsluna.
Fram undan eru jafnframt frekari áfangar í rafvæðingu starfseminnar en um mitt ár 2026 tekur Ístak í notkun 100% rafdrifinn dráttarbíl með malarvagni. Með tilkomu hans verður unnt að flytja efni úr námunni með innlendri, endurnýjanlegri orku og verður efnisvinnsla í námunni þá að fullu rafknúin, þ.e. allt frá vinnslu til afhendingar.




Fréttir










