Vaðölduver, framkvæmdir ganga vel
18. maí 2026

Miðvikudaginn 13. maí 2026 náðist stór áfangi í framkvæmdum Ístaks við Vaðölduver þegar holplötur sem mynda þak stærsta spennarýmis Safnstöðvarhússins voru hífðar á sinn stað. Með því er nú komið þak á allt húsið.
Safnstöðvarhúsið gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu virkjunarinnar en þar verður meðal annars komið fyrir 200 tonna spennubreyti sem tekur við orku frá vindmyllunum og tengir hana áfram inn á háspennudreifikerfið.
Undanfarnar vikur hefur verið mikill kraftur í framkvæmdunum og hafa starfsmenn Ístaks og undirverktakar unnið þétt saman að því að ná þessum mikilvæga áfanga.
Af því tilefni var haldin grillveisla fyrir allt starfsfólk á verkstað þar sem fagnað var góðum árangri í sól og blíðu — og meira að segja vindurinn í Vaðöldu tók sér stutta pásu þann daginn.
Fréttir














